Hugsað fram í fingurgóma

Tilvistarkreppa spendýrs frá sjónarhóli öreindar.

þriðjudagur, nóvember 30, 2004

Engar pyntingar í Guantanamo?


General Myers: No torture at Guantanamo Bay
"We certainly don't think it's torture,"

...

"Let's not forget the kind of people we have down there," he said. "These are the people that don't know any moral values."
Það sýður í manni blóðið við að lesa svona lagað.

Fólkið verður með mótmælastöðu gegn stuðningi íslenskra stjórnvalda við Íraksstríðið milli 12 og 14 við alþingishúsið í dag, 1. des. Gerðu heiminum greiða, láttu sjá þig.

posted by Björn Darri at 9:54 e.h. 0 comments

Píslarvottur sannleikans


Dæmdur fyrir að leka upplýsingum um gereyðingarvopn í danska fjölmiðla

Fólkið.

posted by Björn Darri at 4:07 e.h. 0 comments

Írak rís upp úr öskunni í eldinn


Iraq’s New Patent Law
For generations, small farmers in Iraq operated in an essentially unregulated, informal seed supply system. Farm-saved seed, agricultural experimentation, and the unrestricted exchange of planting materials among farming communities has long been the basis of Iraq’s cultivation practices. All this is rendered illegal by the new law. The seeds that farmers are now allowed to plant—“protected” crop varieties brought into Iraq by transnational corporations in the name of agricultural reconstruction—will be the property of the corporations.

Fólkið.

Tengist sko þessari færslu.

posted by Björn Darri at 10:50 f.h. 0 comments

Öllu snúið á hvolf eins og þeim einum er lagið

Deilt um afstöðu til aðgerða í Írak á Alþingi
Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, sagði á Alþingi í dag að ef Íslendingar féllu frá stuðningi við aðgerðir Bandaríkjamanna og annarra ríkja í Írak, þá þýði það að Íslendingar láti af stuðningi við hina pólitísku og efnahagslegu uppbyggingu í Írak.
Bull.
Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, sagði að hvergi færi fram umræða um að taka lönd af umræddum lista nema hér.
Húrra fyrir okkur.
Sagðist Davíð hafa þurft að fara á Landspítalann og láta skera úr sér krabbamein og fyrir aðgerðina hefði hann þurft að gefa skriflegt samþykkti. Sagði hann að ef hann nú kæmi og vildi taka til baka þetta samþykki við uppskurðinum þá yrði litið á hann sem einhverskonar fífl.
Svona samlíkingar segja mér að þú sért fífl Davíð.
Sagði hann að menn hefðu viljað að krabbameinið Saddam Hussein yrði skorið í burt í Írak og síðan tæki við endurhæfing.
Það þarf að fjarlægja krabbameinið Sjálfstæðisflokkinn úr stjórninni og hefja endurhæfingu.
Halldór Ásgrímsson, sagðist heyra það á þingflokki Samfylkingar, að þar vilji menn ræða fortíðina en það sem skipti máli sé hvaða afstöðu þingmennirnir hafi gagnvart því sem nú sé verið að gera í Írak. „Innrásin er löngu búin," sagði Halldór.
Minnir mig á 'The Doctrine of Change of Course', sem Chomsky talar mikið um. Það var þá, en svoleiðis gerum við ekki lengur þannig að við skulum ekki tala um það.

Fólkið.

posted by Björn Darri at 10:14 f.h. 0 comments

Enn hækkar bensínið hjá öllum í einu

Olíufélagið Esso hækkaði í dag verð á bensínlítra um eina krónu og verð á dísilolíulítra um 1,50 krónur. Skeljungur og Olís hækkuðu verð hjá sér um sambærilegar upphæðir fyrir helgi.

Héðan.

Tengist þessari færslu að vissu leiti.

posted by Björn Darri at 10:10 f.h. 0 comments

Lygamælir sem virkar?

Truth, lies differ in brain scans

Það þyrfti að troða Dabba & co. í svona reglulega.

posted by Björn Darri at 10:02 f.h. 0 comments

mánudagur, nóvember 29, 2004

Er stuðningurinn við Íraksstríðið flókið og viðamikið mál?


Varðandi afstöðu þingmanna Framsóknarflokksins til stuðnings íslenskra stjórnvalda við Íraksstríðið sagði Hjálmar Árnason eftirfarandi:
"Það eru ugglaust skiptar skoðanir innan minna raða eins og margra annarra í svo flóknu og viðamiklu máli sem þetta er,"
Héðan.

Flókið og viðamikið mál my ass. Af hverju lítur þetta út fyrir að vera svona ótrúlega einfalt frá mínum bæjardyrum séð? Ætli það sé kannski vegna þess að við almenningurinn í landinu (og stjórnarandstaðan) höfum aldrei fengið að vita, hvað raunverulega bjó að baki þessari ákvörðun hæstfirrtra ráðamanna okkar um að styðja gandreið Bush & co inn í Írak, þessa krossferð valdagræðginnar.

Hvaða pungtak er Bush með á Davíð og Dóra annað en veru varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli?

Eru þeir að reyna að viðhalda góðu atvinnuástandi á Suðurnesjum með því að styðja þessa stríðsglæpi? Líf útlendinga fyrir atvinnu Íslendinga?

"Eins dauði er annars brauð" er máltæki, ekki skynsamlegur grunnur að utanríkisstefnu.

Tillaga til þingsályktunar um innrásina í Írak og forsendur fyrir stuðningi íslenskra stjórnvalda við hana er að finna hér.

posted by Björn Darri at 10:07 f.h. 0 comments

Svisslendingar kjósa framfarir


Svissneskir kjósendur samþykktu með yfirgnæfandi meirihluta í þjóðaratkvæðagreiðslu í dag að heimila rannsóknir á stofnfrumum mannsfóstra. Þjóðaratkvæðagreiðslur eru tíðar í Sviss en þetta er í fyrsta skipti í heiminum sem þjóðaratkvæði eru greidd um þetta umdeilda mál.
Meira.

posted by Björn Darri at 1:08 f.h. 0 comments

sunnudagur, nóvember 28, 2004

Ekki skjóta Andrés Önd


Forseti Alþingis vill banna andaveiðar
Forseti Alþingis hefur lagt fram frumvarp um að andaveiðitíminn verði styttur um þrjá mánuði. Helst vill hann að endur verði alfriðaðar.

...

Halldór segist vera mikill andavinur og að hann hafi vanist því frá blautu barnsbeini að fylgjast með öndum á vorin.

...

Veiðimenn geti sjaldan greint á milli friðaðra anda og þeirra sem leyfilegt er að skjóta.

Miðað við stuðning íslenskra stjórnvalda við stríðið í Írak sýnist mér Halldór ekki vera neitt sérstaklega mikill mannvinur.

posted by Björn Darri at 1:39 e.h. 0 comments

Genfarsáttmálahvað?


Summary: Between the Pentagon and Arab news media, it’s getting harder to sift the truth from the propaganda. This report from IPS doesn’t quote any US sources for confirmation or denial of the gross human rights violations levelled by ‘eyewitnesses.’ But even if half of this stuff is true, Fallujah will go down as one of the worst breaches of the Geneva Convention since the invasion.
'Unusual Weapons' Used in Fallujah

posted by Björn Darri at 1:26 e.h. 0 comments

laugardagur, nóvember 27, 2004

Stríð í hnotskurn

War

posted by Björn Darri at 5:41 e.h. 0 comments

föstudagur, nóvember 26, 2004

Jákvæðar fréttir til tilbreytingar

Even guerrillas need something to smile about






Maður endist ekki lengi ef maður einblínir bara á hið neikvæða :)

posted by Björn Darri at 11:00 e.h. 0 comments

American Heroes and Psychos

1.
U.S. soldier charged with murder of Iraqi citizen

2.
American Heroes...

ps. ég sendi þessa færslu til Björns nafna míns Bjarnasonar og bað um athugasemd frá honum. Ætli séu meiri en 0.5% líkur á svari?

Sko Björn, hann svaraði mér :).
Sæll Björn Darri.

Þakka þér fyrir ábendinguna - ég hef lesið þennan texta en hafði áður fylgst með umræðum um atvik af þessu tagi í fjölmiðlum. Hér er sagt frá átakanlegum atburðum í stríði og því hvernig tekið er á þeim hermönnum, sem eru taldir brjóta af sér. Ég hef svo lengi fjallað um svo margt hroðalegt sem blaðamaður og endursagt lýsingar á svo hörmulegum atburðum, að fátt kemur mér á óvart í því efni.

Með góðri kveðju
Björn Bjarnason
Ég bað hann um að lýsa í örfáum orðum hvaða tilfinningar vöknuðu innra með honum við lesturinn og var að gera mér afar útópískar vonir um að hann sýndi sína mannlegu hlið með því að viðurkenna þetta augljósa ranglæti og gagnrýna það.

Ef ég á ekki íslensku bjartsýnis-verðlaunin skilin fyrir þetta þá veit ég ekki hvað :).

Smellið á Bjössa og sendið honum línu:

posted by Björn Darri at 10:03 e.h. 0 comments

Spásími


Smart phone predicts owner's behaviour

Reminder frá spásímanum:
Það eru 88% líkur á ferð í kvikmyndahús með 'Kiddi GSM' kl. 20:00.
eða
Það eru 100% líkur á því að þú hangir heima og horfir á kassann í kvöld.

posted by Björn Darri at 9:16 e.h. 0 comments

Hinn sanni andi jólanna?


Pre-dawn mall openings mark the beginning of the holiday shopping season.

posted by Björn Darri at 1:30 e.h. 0 comments

Gunnm: Battle Angel Alita


Uppáhalds mangað mitt, Gunnm, verður fært í kvikmyndabúning, af engum öðrum en James Cameron. Ég er búinn að bíða lengi eftir staðfestingu á þessu :), las einhverstaðar fyrir löngu að þetta er búið að vera draumaverkefnið hans í mörg ár.

posted by Björn Darri at 11:28 f.h. 0 comments

fimmtudagur, nóvember 25, 2004

Sammála Jefferson

There is not a truth existing which I fear... or would wish unknown to the whole world.
Thomas Jefferson (1743-1826)

posted by Björn Darri at 10:26 e.h. 0 comments

Helgar árangurinn meðalið?

Iraqi forces find suspected chemical weapons lab [in Falluja]
Iraq's interim National Security Adviser Kasim Dawood announced the discovery of the suspected chemical weapons lab [in Falluja] which he said was "manufacturing death, intoxication and assassination."

"We have also discovered in this laboratory a pamphlet and instructions showing how to manufacture explosives and toxins," Dawood said. "And they also talk about the production of anthrax."

Kæmi mér ekki á óvart þótt megnið af þessu væri tómt kjaftæði þegar allt kemur til alls. Nú þurfa þeir bara að endurtaka þetta nógu oft þannig að fólk fari að trúa þessu, þar með er blóðbaðið í Falluja réttlætt.

Ætli þetta svanga Íraska barn hafi kannski verið að framleiða gereyðingarvopn?

posted by Björn Darri at 4:39 e.h. 0 comments

miðvikudagur, nóvember 24, 2004

Feynman tjáir sig um vísindi og fegurð


Endilega hlustið á þetta, ein og hálf mínúta, pínulítil skrá, innanlandsniðurhal og allt.

posted by Björn Darri at 10:57 e.h. 0 comments

Bandaríkin í djúpum fjárhagslegum skít?


Economic `Armageddon' predicted

posted by Björn Darri at 4:47 e.h. 0 comments

Þráinn um trúleysið og tómhyggjuna

Þráinn (þessi annars klári kall) gerir lítið úr sjálfum sér aftan á fréttablaðinu í dag, sýnir hvað hann er fordómafullur þegar kemur að trú og trúleysi.

Best að taka það fram að ég er að apa upp eftir Örvitanum :).
Þráinn um trúlausa

Af Vantrú.net:
Er tómhyggja slæm?

posted by Björn Darri at 10:43 f.h. 0 comments

þriðjudagur, nóvember 23, 2004

Djöfullinn Sharon


Fjöldamorðin í Líbanon 1982

Manni verður bara bumbult við að lesa þetta, sýnir manni hvað Sharon er mikill sómakall.

posted by Björn Darri at 10:30 e.h. 0 comments

Límmiðinn fáránlegi

Hér er að finna límmiðann, sem ég var að ergja mig yfir í þessari færslu.

Tillögur að fleiri svona bráðnauðsynlegum límmiðum er að finna hér.

posted by Björn Darri at 10:04 e.h. 0 comments

Svartsýni eða raunsæi?


Going Nuclear: The Coming Wars with Iran and North Korea

Tengist þessari færslu.

posted by Björn Darri at 7:19 e.h. 0 comments

Hræsni Bandaríkjamanna er ótrúleg

Einn af þeim glæpum gegn mannkyninu, sem Saddam er sakaður um er innrásin í Kúveit 1990.

Ok.

Það ER semsagt glæpur gegn mannkyninu að ráðast inn í annað land í þágu eigin hagsmuna.

Aaarrrrgghhh.

posted by Björn Darri at 5:35 e.h. 0 comments

Meira um svarthol


Huge Black Holes Formed Quickly After Big Bang

posted by Björn Darri at 4:00 e.h. 0 comments

Björn Bjarna bullar


Björn Bjarnason: Lýðveldið og guðleg forsjón.
Þegar ég hugsa til ræðumannanna, sem stóðu á Lögbergi fyrir 60 árum og lofuðu gæsku Guðs við íslensku þjóðina, held ég að hvorki þeim né nokkrum áheyrenda þeirra, hefði dottið í hug, að það yrði hugsanlega notað til gagnrýni á þá, að þeir vísuðu til handleiðslu Guðs almáttugs. Í apríl síðastliðnum ræddi ég gildi bænarinnar á prestastefnu og varð það tilefni greinar í Morgunblaðinu, þar sem höfundur sagði meðal annars:

„Ég vil setja stórt spurningarmerki við dómgreind þeirra sem telja sig þess umkomna að halda því fram að þeir hafi fengið guðlega leiðsögn. Er ekki mannkynssagan full af ráðamönnum þjóða og kirkna sem farið hafa hamförum í sínu sambandi við óútskýranlegar verur?“

Með öðrum orðum, góðir áheyrendur, nú á dögum, þegar stjórnmálamenn leyfa sér að ræða gildi bænarinnar og lýsa trausti sínu á hina guðlegu forsjón eru þeir ávíttir fyrir að telja sig í samandi við „óútskýranlegar verur.“

Greinarhöfundur vill, að skynsemi, rökhyggja og mat á öllum aðstæðum ráði, þegar stjórnmálamenn eða aðrir taka ákvarðanir. Ég er sammála því.

En ég spyr: Hver verður verri af því, að sækja styrk til þess, sem fullvissar okkur um, að hver sá öðlist, sem biður, sá finni, sem leitar, og fyrir þeim, sem á knýr, muni upp lokið verða.

Náð og blessun eru góðir förunautar og bæn um leiðsögn til þess, sem hefur öll ráð í hendi sér, spillir ekki neinni ákvörðun.

...

Megi góður Guð halda verndarhendi sinni áfram yfir Íslandi og Íslendingum!

Björn Bjarnason sér semsagt ekkert að því að fólk þyggi ráð frá álfum, tröllum, guðum og öðrum ímynduðum verum, sér bara ekkert óskynsamlegt við það.

Þessi maður er jafn vitlaus og Bush.

Höfundur Hávamála hafði sitthvað um heimsku að segja, t.d. eftirfarandi:
Ósnotur maður
er með aldir kemur,
það er best að hann þegi.
Engi það veit
að hann ekki kann,
nema hann mæli til margt.
Veit-a maður
hinn er vætki veit,
þótt hann mæli til margt.

posted by Björn Darri at 1:29 e.h. 0 comments

mánudagur, nóvember 22, 2004

Better than the real thing?


Hátæknihné Össurar ein athyglisverðasta uppfinning ársins að mati Time

Tengist þessari færslu.

posted by Björn Darri at 1:07 e.h. 0 comments

sunnudagur, nóvember 21, 2004

Mér líður eins og ég hafi verið í dýragarði...

...eftir að hafa litið inn á kallarnir.is

Þeir minna mig á Bud the Horny Monkey:


Nokkrar ófleygar setningar af þessum hormónavef:
"Því miður vinur... ég bara tala ekki við menn sem að taka undir 100 í bekk"

"Hvað kosta þessar mellur þarna aftur í hjá þér?!?!" - "2500 kall" – "Jájá...þá bara svona svipað og bílhræið" - Jóhann við tvo Selfyssinga á Hondudruslu.

"Betra að vera seinn og flottur en fljótur og ljótur" - þegar Ágúst var spurður af því afhverju hann mætir alltaf seint í party.

Merkilegt efnasamband, testósterón.

posted by Björn Darri at 3:45 e.h. 0 comments

Blaður vors blinda biskups bítur

Samskipti trúar og ríkisvalds eru sums staðar spennuþrungin vissulega. Og það verður að viðurkennast að það er oft tilkomið vegna framsóknar Íslam í Evrópu, og kröfu Íslams um að tillit sé tekið til múslimskra trúarhátta, siða og réttar. Og þá hafa Evrópumenn hrokkið í kút. Íslam er guðveldi í eðli sínu, trú og pólitík eru þar samofin. Íslam þekkir ekki það sem Vestur Evrópa hefur gengið gegnum í þúsund ára glímu um trú og stjórnmál, um ríki og kirkju, hefur ekki átt neina siðbót, né upplýsingaröld. Og er Evrópusambandið ekki kristinn klúbbur? Spyrja menn. Eru grunngildi Evrópu ekki sprottin af kristnum rótum, kristinni sögu, menningu, sið? Og hvernig getum við mætt kröfum guðveldisins ef við drögum fjöður yfir það?

...

Og það sem gæti hafa orðið spennandi og árangursríkt samtal um frelsi og lýðræði og umburðarlyndi varð oft eitthvað allt annað. Óbilgirni og fordómar réðu of oft ferðinni. Hið sama höfum við séð hér á Íslandi. Orðræðan hér um samskipti ríkis og kirkju virðist æði slagorðakennd og gjarna borin uppi af fordómum og fáfræði. Það er miður. Vegna þess að þetta er mikilvæg umræða, ekki aðeins varðandi þrönga hagsmuni trúfélaganna, heldur vegna þess að hún snertir grundvallaratriði okkar menningar og þjóðskipulags. Oft er gengið að því gefnu að hér sé fjölmenningarsamfélag, og í ljósi þess mikilvægt að opna allar dyr og afnema alla mismunun. En er það raunhæft? Og hvernig lítur slíkt þjóðfélag út?

...

En aðstæður eru aðrar í dag. Fjölmenning sækir á. Og við höfum val um hvernig við viljum móta samfélagið og grundvallarviðmið menningarinnar. Við gætum valið að láta samfélagið mótast af fjölhyggju og tekið því að hinar sögulegu forsendur væru leystar upp, og sett alla trú og menningarhefðir jafnfætis, og engum sé gert hærra undir höfði en öðrum. Eða við höldum fast í að þróun samfélagsins byggir á sögulegum grunni þar sem kristnin gegnir lykilhlutverki sem bandamaður lýðræðisríkisins .

...

Guð er að verki í hinu veraldlega sviði líka, jafnvel Tyrkjasoldán er þjónn Guðs að því leiti sem hann heldur uppi réttlátum lögum og góðri reglu í ríki sínu.

...

Við verðum að tryggja trúfrelsið, sem ekki aðeins að trú sé umborin heldur viðurkennd sem grundvallandi þáttur í heilbrigðu mannlífi og þjóðlífi.

...

Hins vegar tel ég vafasamt að við eigum að afnema alla jákvæða mismunun gagnvart þjóðkirkjunni á meðan hún heldur meirihlutafylgi og sinnir almannaþjónustu og skyldum við landsmenn alla sem hingað til.

Fífl.

posted by Björn Darri at 3:19 e.h. 0 comments

Kristilegar þunglyndissíður


Kristilegar þunglyndissíður (CDP)
"Miskunnsöm uppspretta fræðslu fyrir kristna með þunglyndi og aðra sem er annt um þá"

Þetta er þýðing á bandarískum vef, christian-depression.org, eins og sést á eftirfarandi klausu:
Afsal ábyrgðar

Við erum ekki geðheilbrigðisfagfólk, læknar, ráðgjafar eða safnarleiðtogar. Ef þú heldur að þú þjáist af þunglyndi, skaltu fyrir alla muni fara strax til læknis og fá faglega aðstoð.

Þessi vefur getur ekki komið í stað ráðlegginga lækna og er ekki ætlað það. Allt efni hér er eingöngu til fræðslu. Þessi vefur er ekki til sjúkdómsgreiningar og sálgæslu.

Við erum ekki ábyrg fyrir missi, tjóni eða meiðslum sem þú gætir orðið fyrir í kjölfar þess að lesa efni vefsins.

Nema annað sé tekið fram, er efni vefsins ekki samið af geðheilbrigðisfagfólki, læknum eða safnarleiðtoga.

posted by Björn Darri at 3:01 e.h. 0 comments

Guerilla News Network skammtur dagsins

We all know the scene. America’s favorite soldier sitting stone-faced looking out at the world, holding up that fake vial of anthrax… that was supposed to signify Iraq’s real terrorist threat to America. Turns out there was more truth in his hand than his word. But hasn’t that always been the way with soldier politicians?
The Good Soldier Told A Bad Lie

Psychological warfare has always been a cornerstone of conventional military planning. And no force works better to drive the civilian population of a target nation into line than that of fear. Terror, it’s Pavlovian. Which is precisely, argues Jonathan Schell, the reason for levelling Falluja.
A Defining Moment For Iraqis?

posted by Björn Darri at 1:50 e.h. 0 comments

Jæja, einn plús í kladdan

The Air Force Academy's longtime football coach has agreed to remove a Christian banner ["I am a Christian first and last ... I am a member of Team Jesus Christ."] from the team's locker room after school administrators announced they would do more to fight religious intolerance.

Air Force Academy removes Christian banner

posted by Björn Darri at 1:15 e.h. 0 comments

The Four Horsemen of the Apocalypse





posted by Björn Darri at 1:09 e.h. 0 comments

Déja Vu

Úr fréttum RUV í gærkvöldi.
Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins staðhæfir að stjórnvöld í Íran séu að undirbúa framleiðslu kjarnavopna. Segjast hafa sannanir fyrir því að Íranir séu að auðga úran til framleiðslunnar.

Bandaríkjastjórn telur að Íranir séu langt komnir með kjarnorkuvopnaáætlun sína.

"We believe we are on very, very solid ground, in pointing to a clandestine effort by Iran to develop weapons of mass destruction and their delivery systems."

Evrópusambandið telur Írani hafa engin áform uppi um að eignast kjarnavopn.

Endar þetta á viðskiptaþvingunum og stríði? Svo Norður Kórea?

Bush öskrar "úlfur, úlfur", G.I. Joe fer og aflífar einhvern kjölturakka, svo eyðir andvitneskjubatterí Bandaríkjastjórnar árum í að sannfæra heiminn um að hundkvikindið hafi nú verið frekar úlfslegt og raunar átt skilið að deyja.

Þvílík martröð.

posted by Björn Darri at 11:27 f.h. 0 comments

Gott á Golíat

Bandaríkjastjórn mistókst að fá Sameinuðu þjóðirnar til að banna klónun fósturvísa úr mönnum.
SÞ hafna banni við klónun fósturvísa

posted by Björn Darri at 11:25 f.h. 0 comments

Inboxið hans Bush

Hér

posted by Björn Darri at 11:11 f.h. 0 comments

Americans vs. reality

Third of Americans Say Evidence Has Supported Darwin's Evolution Theory


Scientist: Man in Americas earlier than thought


Human Evolution


Disney meets Darwin

Fyrir lengra komna:
Thermodynamic nature of the biological evolution, the model and the reality

posted by Björn Darri at 2:34 f.h. 0 comments

Stephen Jay Gould archive


Stephen Jay Gould archive

posted by Björn Darri at 1:49 f.h. 0 comments

laugardagur, nóvember 20, 2004

Þú átt 10 daga eftir...


Sagði nemendum að loftsteinn stefndi til jarðar

posted by Björn Darri at 10:39 e.h. 0 comments

Hjartanlega sammála Gneistanum

Um hvað snýst pólitík

posted by Björn Darri at 5:10 e.h. 0 comments

Micro$oft menn sýna hvað þeir eru vitlausir


"We think our software is far more secure than open-source software. It is more secure because we stand behind it, we fixed it, because we built it. Nobody ever knows who built open-source software,"
Segir Micro$oft kallinn Steve Ballmer.

posted by Björn Darri at 2:27 e.h. 0 comments

Er Kirkjan skíthrædd við Da Vinci lykilinn?

Fjöldi fólks sækir námskeið Kirkjunnar um Da Vinci lykilinn

Karl Sigurbjörnsson skrifar um fagnaðarerindi Da Vinci lykilsins

Bók Dan Browns er spennandi glæpasaga, og lesandinn dregst inn í sannfærandi samsæriskenningar og situr uppi með spurningar um sannleiksgildi þess sem kirkja og kristni stendur fyrir. Og spyr sig ef til vill: Er það ef til vill aðeins lævíslegt samsæri, til að þagga niður sannleikann og viðhalda völdum harðsvíraðra og spilltra kirkjufursta? En prestar og guðfræðingar og aðrir fræðimenn hrista hausa sína og spyrja hvernig í ósköpunum fólk getur lagt trúnað á svona þvælu.

Kannast við þá tilfinningu.

Vegna hins miðlæga hlutverks Biblíunnar í kristninni þá eru spurningar um sögulegt gildi hennar gríðarlega mikilvægar

...

Þó að þau sjónarmið sem Da Vinci lykillinn heldur fram um uppruna kirkjunnar og ritningar hennar séu ófrumleg, þá sannar það að hugmyndir eru oft lífsseigar óháð sannleiksgildi þeirra.

No shit!

Kirkjan stendur og fellur með því sem postularnir héldu fram um Jesú Krist, að hann sé Guð son. Það byggir ekki á meirihlutaákvörðun einhvers þings né samsæri og valdabrölt spilltra kirkjufursta. Og fals-sagnfræði spennusagnahöfundar breytir engu um sannleiksgildi þess sem Nýja testamentið og kirkjan halda fram.

Sammála, þetta er ennþá alveg jafn mikið kjaftæði.

posted by Björn Darri at 11:34 f.h. 0 comments

Stórar tölur í fréttunum

Michel Barnier, utanríkisráðherra Frakka sagði í París í dag að raunhæft sé að fella niður um helming skulda Íraka.

...

Skuldir þjóðarinnar nema alls 120 milljörðum dollara.

Eitthvað nálægt 8.400.000.000.000 kr.

Mbl.is

Fjárupphæðir sem krafist var við árangurslaus fjárnám hjá einstaklingum og fyrirtækjum á tímabilinu frá upphafi árs 2001 til 15. október 2004 námu samtals 61 miljarði króna. Þar af námu kröfur á hendur einstaklingum um 40 miljörðum. Ríkissjóður var stærsti kröfuhafinn með um þriðjung krafna en þar næst komu bankarnir með um 11 miljarða.

Ruv.is

Sex miljarða króna halli varð á rekstri ríkissjóðs árið 2003, samkvæmt endurskoðuðum ríkisreikningi. Þetta er fjórðungi minni halli en árið 2002. Í skýrslu um endurskoðun ríkisreiknings segir að tekjur ríkissjóðs hafi aukist hlutfallslega meira en gjöld árið 2003. Tekjur voru 275 miljarðar króna, það er rúmum 15 miljörðum meira en 2002, eða um 6% hækkun. Gjöld ríkissjóðs voru 281 miljarður sem er liðlega 13 miljarða hækkun frá fyrra ári.

Ruv.is

Ef Baugur Group kaupir bresku verslunarkeðjuna Big Food Group verður ársvelta Baugs 700 milljarðar króna og starfsmenn samstæðunnar 50 þúsund talsins.

Mbl.is

Miðað við gengið í síðustu viðskiptum er markaðsvirði KB banka um 330 milljarðar

Mbl.is

Hagnaður Íslandsbanka fyrir skatta fyrstu sex mánuði ársins var 8,2 milljarðar króna. Heildareignir samkvæmt efnahagsreikningi 31. ágúst voru 547,6 milljarðar króna.

Mbl.is

Carl Haub, höfundur skýrslunnar, segir að jarðarbúum muni fjölga um 45% í tæplega 9,3 milljarða fram til ársins 2050.

Mbl.is

posted by Björn Darri at 2:31 f.h. 0 comments

föstudagur, nóvember 19, 2004

Nýjasta nýtt um svarthol



Polaroid Sunglasses Let Astronomers Take A Closer Look At Black Holes

posted by Björn Darri at 10:49 f.h. 0 comments

Kristilegir demókratar í Noregi...

...eru alveg jafn miklir steingervingar og Kristilegir demókratar annarstaðar í heiminum.

Samkynhneigðum í Noregi hvorki leyft að giftast né ættleiða börn.

posted by Björn Darri at 10:35 f.h. 0 comments

fimmtudagur, nóvember 18, 2004

Pirringur í bundnu máli

Trúin rænu og ráði rænir,
rauðan litar völl.
Fáfræðlinga til sín hænir,
fáviskunnar fagra höll.
Skynsemin slíðruð og raunsæið grafið,
og sjálfstæðið urðað með.
Lyginnar illgresi lífið umvafið,
trú leikur grátt vort veika geð.

posted by Björn Darri at 2:24 e.h. 0 comments

Er lengur hægt að treysta Biblíunni?

Sköpunarsaga Biblíunnar undirstrikar hins vegar skýrt að hver tegund var sjálfstæð en ekki þróuð út frá annarri eins og þróunarkenning Darwins heldur fram. Darwins-fylgjendur segja að steingervingafræðin sanni þróun tegundanna en það gerir hún alls ekki! Þar eru margar eyður og ósvaraðar spurningar. Og það hefur ekkert nýtt komið fram um áratugaskeið í rannsóknum líffræðinga sem styður blinda þróun þar sem ekkert hugvit var að baki. Kristnir menn geta því sofið vært gagnvart þeirri fullyrðingu að sköpunarsaga Biblíunnar sé úrelt og hlægileg. Hún er það svo sannarlega ekki. Hún heldur fram þeirri kenningu að vitiborinn skapari sé að baki efnisheiminum. Persónulegra þykir mér það miklu líklegri kenning en hin sem menn hafa þróað útfrá kenningum Darwins, -sú að hinn gífurlegi fjölbreytileiki og fullkomleiki lífríkisins sé afleiðing blindra tilviljana þar sem ekkert hugvit búi að baki. Það þarf mikla trú til að trúa slíkri kenningu! Ef eitthvað er farið að gefa sig, vísindalega skoðað, þá er það þróunarkenning Darwins.

Þetta segir Friðrik Ó. Schram, safnaðarprestur hjá Íslensku Kristskirkjunni hér:
Er lengur hægt að treysta Biblíunni?

posted by Björn Darri at 1:07 e.h. 0 comments

Bræður munu berjast

og að bönum verðast,
munu systrungar
sifjum spilla;
hart er í heimi,
hórdómur mikill,
skeggöld, skálmöld,
skildir eru klofnir,
vindöld, vargöld,
áður veröld steypist,
mun engi maður
öðrum þyrma.

Rakst á Völuspánna á brölti mínu um netið, hún er alltaf jafn kyngimögnuð.

Varð náttúrulega að rifja upp Hávamálin í leiðinni.
Ungur var eg forðum,
fór eg einn saman:
þá varð eg villur vega.
Auðigur þóttumst
er eg annan fann:
Maður er manns gaman.

...

Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
Eg veit einn
að aldrei deyr:
dómur um dauðan hvern.

Fullar grindur
sá eg fyr Fitjungs sonum.
Nú bera þeir vonar völ.
Svo er auður
sem augabragð:
hann er valtastur vina.

posted by Björn Darri at 1:57 f.h. 0 comments

Rökræður 101

Hér er að finna ljómandi gott svar Birgis við því, sem undan hefur gengið í athugasemdunum við þessa bloggfærslu. Mæli með því að fólk lesi þetta frá byrjun, en ef tími er alveg rosalegt issjú þá er þessi eina athugasemd Birgis vel þess virði.

posted by Björn Darri at 1:39 f.h. 0 comments

miðvikudagur, nóvember 17, 2004

Alveg fjúkandi brjálaður núna

Group may sue to block species protection
The legal foundation -- representing business groups, farmers and developers...

Friðarsinninn í mér verður bókstaflega að engu þegar kemur að svona löguðu.

Bara skjóta þetta lið. (ritað undir áhrifum stundarbrjálæðis)

Tengist þessari færslu.

posted by Björn Darri at 4:57 e.h. 0 comments

Vér mótmælum öll


Ég vona að fólk geri sér grein fyrir því að við erum að dæla blóði saklausra Íraka á bílana okkar þessa dagana.

Það er helvítis villimennska að styðja stríðið í Írak. Ég vil sjá meðlimi ríkisstjórnarinnar í gapastokkum á Austurvelli. Ég hefði gaman af því að henda rotnu grænmeti í fésið á Davíð og senda svo hann og félaga í friðargæslu til Afganistan.

Látum ekki gráðuga siðleysingjana blekkja okkur, raunveruleikinn er nefnilega beint fyrir framan nefið á okkur.

Hvernig væri nú að taka Helga Hóseasson okkur til fyrirmyndar og mótmæla þessu óréttlætanlega vopnaskaki stjórnar vorrar, tökum skiltin fram og látum í okkur heyra!

Þessu tengt:
When the smoke has cleared around Fallujah, what horrors will be revealed?

Fallujah Battle Deepens Divide in Iraq

The Real Battle; Winning in Fallujah Is Just the Beginning - by Wesley K. Clark

posted by Björn Darri at 10:50 f.h. 0 comments

Prumpandi örverur, lausn orkuvandans?


Coal-Bed Methane Being Created By Microbes, Researchers Say

posted by Björn Darri at 10:14 f.h. 0 comments

A Resource For Recovering Christians

Þarft þú að losna undan böli kristinnar trúar?

CHRISTIANS ANONYMOUS

Gæti hjálpað.

posted by Björn Darri at 9:43 f.h. 0 comments

þriðjudagur, nóvember 16, 2004

Uruguay sýnir að allt er hægt


A few days before the election of the President of the planet in North America, in South America elections and a plebiscite were held in a little-known, almost secret country called Uruguay. In these elections, for the first time in the country’s history, the left won. And in the plebiscite, for the first time in world history, the privatization of water was rejected by popular vote, asserting that water is the right of all people.

Where the People Voted Against Fear

Guerilla News Network

Allt um Uruguay

posted by Björn Darri at 11:38 f.h. 0 comments

mánudagur, nóvember 15, 2004

Is Nato a threat to Europe that must be disbanded?


So it makes no sense that the largest and most powerful European states, those who are most able to defend themselves, should cling to outdated anxiety and the notion that their ultimate security depends on the US. Do we really need American nuclear weapons to protect us against terrorists or so-called rogue states? The last time Europe was in dire straits, as Nazi tanks swept across the continent in 1939 and 1940, the US stayed on the sidelines until Pearl Harbor.

Nato Is A Threat To Europe And Must Be Disbanded segir Jonathan Steele á Guerilla News Network

posted by Björn Darri at 2:05 e.h. 0 comments

Kennarar vilja betri kjör, ég vil betri kennara


Ég hef sveiflast soldið á milli fylkinga hvað varðar kennaraverkfallið, það hefur farið soldið eftir því við hvern ég hef verið að ræða hverju sinni. Ég tel mig núna hafa komist að þeirri niðurstöðu að kennarar beri meiri samfélagslega ábyrgð en nokkur önnur stétt og að kröfurnar, sem gerðar eru til þeirra og launin sem þeir fá fyrir störf sín séu í fullkomnu ósamræmi við einmitt það.

Kennarar eiga hvað stærstan þátt í því að móta framtíð næstu kynslóða og sjá til þess að börn skilji umhverfið og læri að bregðast skynsamlega við öllu því hnitmiðaða áreiti, sem á þeim dynur úr öllum áttum. Með þetta í huga vil ég sjá kröfurnar, sem gerðar eru til nemenda í KHÍ auknar umtalsvert á öllum sviðum námsins. Þetta hefði án efa það í för með sér að meðaleinkunnir grunnskólabarna hækkuðu úr nákvæmlega 5.0* og upp í eitthvað, sem hæfir efnuðu upplýsingaþjóðfélagi eins og okkar, er það ekki annars hæfni kennara, sem hefur hvað mest áhrif á námsárangur barna? Ég hugsa að samfélagið í heild tæki mikið betur undir kröfur kennara um betri kjör ef börn væru að staðaldri betur undirbúin undir framhaldsmenntun 15 ára.

Það er eitthvað mikið að, þegar kennarar vilja fá áfallahjálp eftir verkfall, áfallahjálp sem ætluð er fólki sem lent hefur í hörmungum eða lífsháska. Ætli þetta segi okkur ekki mest um andlegt atgervi kennara og það álag sem þeir vinna undir, fólk sem þarf að vera nógu andlega stöðugt til að geta tryggt kyrrð, ró og sómasamlega kennslu í skólastofu nútímans. Það læðist nefnilega að mér sá grunur, að þetta stafi að miklu leiti af því að KHÍ útskrifar fólk í gríð og erg, almennt illa undirbúið fyrir kennarastarf í nútímasamfélagi, sem verður svo til þess að kennurum líður illa og börn koma illa undirbúin úr skólanum.

Það er ekki nóg að bera ábyrgð, það verður að standa undir henni líka.

* meðaltal í öllum greinum árið 2002, yfir landið allt, fengið héðan. Mér finnst þetta svo undarleg tala, akkúrat 5.0 í öllum greinum, að ég er farinn að halda að hún hljóti bara að vera tölfræðilega óhjákvæmileg, á einhvern hátt sem ég fæ ekki skilið að svo stöddu.

posted by Björn Darri at 9:05 f.h. 0 comments

sunnudagur, nóvember 14, 2004

R.I.P. Ol' Dirty Bastard (1968-2004)


Rapper O.D.B. dies at recording studio

posted by Björn Darri at 1:04 e.h. 0 comments

Einfaldlega flott


http://www.therionweb.de/

posted by Björn Darri at 1:03 f.h. 0 comments

laugardagur, nóvember 13, 2004

Svosem ekkert nýtt

Couple planned to 'sacrifice' children
Police said Mancini told them that Jesus sacrificed himself for her, so she was going to sacrifice the boys to free her soul.

Mancini's attorney, Kimberly Shoen, said her client meant the children no harm.

Ekki held ég að hann hérna yrði ánægður með þetta, þau hljóta að hafa misskilið hann eitthvað.

posted by Björn Darri at 11:12 e.h. 0 comments

Kirkjur Íslands

Hér er að finna myndir af flestum kirkjum landsins, frá mörgum sjónarhornum, innan frá sem utan. Svona fyrir þá sem gætu haft áhuga á slíku.

posted by Björn Darri at 9:26 e.h. 0 comments

Um mig

Myndin mín
Nafn: Björn Darri
Staðsetning: Reykjavík, Iceland

Homo sapiens skepticus

Skoða allan prófílinn minn

(n) the universe; the cosmos

Reality Bites

    We are the world (USA for Iraq 2004)
    Vilt þú hafa fugla í þí­num heimi?
    Er græðgin okkar stærsti löstur?

Previous Posts

  • Hefndin er sæt
  • Stórfelld bókhaldstrix sem komast ekki í fréttir
  • Taugafræðilegur grunnur meðvitundar
  • Samband Bandaríkjanna og nágranna þeirra í suðri
  • Félagslyndar hýenur
  • Rambar Bólivía á barmi borgarastyrjaldar?
  • Áhugaverð sýn á ástralska heimsveldið
  • Markaðssetning gvuðanna
  • Það er sjaldan sem maður fær tækifæri til að hrósa...
  • Hvernig Palestína verður að engu

Archives

  • 2004/05
  • 2004/06
  • 2004/08
  • 2004/09
  • 2004/10
  • 2004/11
  • 2004/12
  • 2005/01
  • 2005/02
  • 2005/03
  • 2005/04
  • 2005/05
  • 2005/06
  • 2005/07
  • 2005/09
  • 2005/10
  • 2005/11
  • 2005/12
  • 2006/01
  • 2006/02
  • 2006/03
  • 2006/04
  • 2006/05
  • 2006/06
  • 2006/08
  • 2006/09
  • 2007/01
  • 2007/02
  • 2007/05
  • 2008/02
  • 2008/03
  • 2008/04

Links

    Vantrú.is
    Killing Iceland
    Fólkið.net
    Information Clearing House
    Guerilla News Network
    GOD-IN-A-BOX©
    CSICOP
    Siðmennt
    The Talk.Origins Archive
    The Skeptic's Dictionary
    The Edge
    Noam Chomsky (Blog)
    James Randi.org
    The Brights
    The Secular Web
    The Skeptics Society
    The Infidel Guy
    Skoðun
    The World of Richard Dawkins
    Fundies Say the Darndest Things
    Rapture Ready


 

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)