Bush biður fyrir friði og hamingju á jörð
Bush biður fyrir friði á jörð; þakkar bandarískum hermönnum í Írak
George W. Bush Bandaríkjaforseti sagðist í vikulegu útvarpsávarpi sínu í dag biðja fyrir friði og hamingju á jörð, og þakkaði bandarískum hermönnum í Írak og annars staðar fyrir fórnir þeirra „í þágu friðar og öryggis okkar allra“.
...
„Með því að færa kúguðum frelsi leggja hersveitir okkar sitt að mörkum til að sigur vinnist í stríðinu gegn hryðjuverkamönnum, og tryggja frelsi og öryggi okkar allra,“ sagði Bush, sem dvelur um jólin í forsetabústaðnum í Camp David. Hann heldur síðan heim á búgarð sinn í Crawford í Texas.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home