Smá sjálfsgagnrýni
Ég stóð mig að svolitlu í kvöld, er að horfa á Jay Leno, sem er nú kannski ekki í frásögu færandi. Nema hvað, Ben Affleck mætir á svæðið og ég hnussa eitthvað, glotti og kalla hann bjána. Kemst svo að því að hann er bara þrælfínn gaur, svona við fyrstu sýn að minnsta kosti. Seinna í þættinum byrjar svo allt í einu William Shatner að syngja eitthvað þvílíkt rokklag, ég samur við mig, hnussa eitthvað og finnst hann eitthvað kjánlegur. Svo syngur gaurinn náttúrulega mikið betur en ég, lagið fínt og ég dilli mér við þetta.
Dæmi um fordóma?
1 Comments:
Ekki alls fyrir löngu mældist Ísland sem fordómafyllsta þjóð í Evrópu.
Skrifa ummæli
<< Home